Nú er svo komið að málefni kosninga hafa verið að ýmsum toga,
þ.e.a.s. félagsmál, efnahagsmál, utanríkismál og fleira. En aldrei
hefur málefni umhverfisins náð að njóta sín, eða ekki jafn mikið og
þau stóru málefni sem nefnd voru fyrr í greininni.
Mikið hefur verið rætt um gróðurhúsaáhrifin og aðra mengun en
fáir vita hvað þeir geta gert til að draga úr slíkri mengun,
þ.e.a.s. að meðalmaður fær ekki nægilega fræðslu eins og ætti að
vera.
Ég styð eindregið að mikil og gagnleg fræðsla verið komin á í
grunn- og framhaldsskólum landsins. Einnig vil ég að í skólum
landsins, þ.e. á öllum stigum verið komið á fót ruslatunnur fyrir
endurnýtanlegan pappa þar sem að mikið af þeim efnum fara út í
náttúruna og á þátt í því að skapa gróðurhúsaáhrif. Það er mjög
mikilvægt að við förum að vinna að þessu sem fyrst og vera þar með
fyrirmyndaþjóð í mengunarvörnum í þeirri von að þjóðirnar í þessum
heimi fylgi í okkar fótspor.
Þetta verkefni er bara í fyrsta stigi í stórbaráttu gegn mengun
á jörðinni. Seinna meir með hjálp vísinda og náttúru getum við
sigrast á þessum ógnvaldi.
Benedikt Kristjánsson