10.12.2006 04:18:10 / benedikt_

Ljóðahorn Benedikts - 2.

Hér er eitt gamalt sem ég samdi um framsóknarflokkinn á sínum tíma,

Burt ertu farin besti vinur

Bóndaflokkurinn góði

Ofboðslega varstu orðinn lynur

og fastur í virkjannaflóði

Svo eitt um nýtt um Sjálfstæðisflokkinn

Íslands frelsandi flokkur

er á ferð og flugi með valdið

orðinn alveg sama um okkur

okkar óvinur, fjandans íhaldið

Þetta er nóg í bili, takk fyrir Benedikt


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 09:06:30 / benedikt_

Kristinn "Old school"

Kristinn H. Gunnarsson hefur lýst því yfir að hann vilji ekki áframhaldandi samstarf við Sjálfstæðisflokkinn. Það hefur sést í gegnum tíðina að Kristinn sé gamaldags framsóknarmaður með félagshyggjuna í fararbroddi í stað einkavæðinugu og einstaklingshyggju.

Þessi maður á klapp skilið, hann hefur oft farið gegn vilja flokksins og farið þá frekar eftir sinni eigin sannfæringu og stefnu. Bara ef væri fleiri framsóknarmenn eins og hann, framsóknarmenn sem hafa ekki misst trúverðugleika sinn í undirlægjuskap við sjálfstæðismenn.

Við vonum það, er það ekki?

Benedikt


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 10:34:46 / benedikt_

Utanríkisstefna

Ísland er frábært land, en ég held ekki því fram að það sé eitthvað betra en eitthvað annað land, en til þess að Ísland geti verið betra en það er og fengið þá viðringu á meðal alþjóðasamfélagsins er t.d. að mynda sjálfstæða utanríkisstefnu, óháða hernaðarbandalögum og amerískum vilja.

Í gallup könnun sem var gerð rétt eftir innrásinni í Írak kom í ljós að 84% af íslendingum voru á móti innrásinni en þrátt fyrir það var samþykkt að gera innrás og Ísland var sett á stuðningslistann. Nú þremur árum seinna stendur ríkisstjórn okkar fast við bakið á bandaríkjastjórn í málum þeirra í Írak þótt að innrásarliðið er þarna eins og hauslaus her og veit ekkert hvað á að gera frekar en innrásardaginn.

Nýjustu tölur gefa til kynna að 600.000 manns hafa fallið í átökunum, þ.á.m. 2600 amerískir hermenn og yfir hundrað breskir hermenn. Sagan mun dæma þetta stríð á mjög svipaðann hátt og sagan í dag dæmir Víetnamstríðið. Sagnfræðingar eftir 50 ár munu dæma sitjandi bandaríkjastjórn harkalega, enda er þetta sú stjórn sem mun láta eftir ör í söguna sem mun leiða til frekara deilna.

Benedikt Kristjánsson

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 09:10:53 / benedikt_

Ljóðahorn Benedikts - 1.

Mikið hefur gerst síðustu daga, menn að saka hvorn annan um njósnir og síðast en ekki síst þær kenningar að Svavar Gestsson, gamall allaballi, hafi unnið fyrir Austur-þýsku leyniþjónustuna. Auðvitað er þetta bara íhaldið að reyna koma hlerunarásökunum á okkur vinstrimenn.

Svavar Gestsson undir gagnrýni

er getur skilið hann eftir særðann

Eða bað hann virkilega um vodka martini

vill hann hristann, ekki hrærðan.

Benedikt Kristjánsson


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 14:49:21 / benedikt_

Endurnýting

Nú er svo komið að málefni kosninga hafa verið að ýmsum toga, þ.e.a.s. félagsmál, efnahagsmál, utanríkismál og fleira. En aldrei hefur málefni umhverfisins náð að njóta sín, eða ekki jafn mikið og þau stóru málefni sem nefnd voru fyrr í greininni.

Mikið hefur verið rætt um gróðurhúsaáhrifin og aðra mengun en fáir vita hvað þeir geta gert til að draga úr slíkri mengun, þ.e.a.s. að meðalmaður fær ekki nægilega fræðslu eins og ætti að vera.

Ég styð eindregið að mikil og gagnleg fræðsla verið komin á í grunn- og framhaldsskólum landsins. Einnig vil ég að í skólum landsins, þ.e. á öllum stigum verið komið á fót ruslatunnur fyrir endurnýtanlegan pappa þar sem að mikið af þeim efnum fara út í náttúruna og á þátt í því að skapa gróðurhúsaáhrif. Það er mjög mikilvægt að við förum að vinna að þessu sem fyrst og vera þar með fyrirmyndaþjóð í mengunarvörnum í þeirri von að þjóðirnar í þessum heimi fylgi í okkar fótspor.

Þetta verkefni er bara í fyrsta stigi í stórbaráttu gegn mengun á jörðinni. Seinna meir með hjálp vísinda og náttúru getum við sigrast á þessum ógnvaldi.

Benedikt Kristjánsson


» 2 hafa sagt sína skoðun